Skip to content
← Back to job listings

Þjálfari

Ísafjarðarbær · Landsbyggð, Iceland

External listingfull-time12 days ago

About The Role

Ísafjarðarbær auglýsir eftir þjálfurum fyrir íþróttaskólann á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. Æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða tímavinnustörf þar sem þjálfun á Flateyri fer fram á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 14:00 til 15:00, á Suðureyri á miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 13:00 til 14:00 og á Þingeyri þriðjudaga og miðvikudaga frá 14:00 til 15:00. Þjálfarar eru í nánu samstarfi við yfirþjálfara íþróttaskólans. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026.

Íþróttaskólinn var settur á fót haustið 2011, er samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar og er rekinn af Ísafjarðarbæ. Skólinn er fyrir öll börn 1.-4. bekkjar í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Lögð er áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV.

Markmið skólans eru að

  • hvetja og fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
  • fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
  • börn fái tækifæri til að kynnast sem flestum íþróttagreinum
  • auka gæði þjálfunar
  • lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
  • auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu

Helstu verkefni

  • Umsjón með starfi íþróttaskólans á viðkomandi stað, skipulagi og þjálfun íþróttagreina
  • Útbúa æfingaáætlun fyrir grunnþjálfun, boltaskóla og sund í samstarfi við yfirþjálfara
  • Aðkoma að gerð stundaskráar
  • Samskipti við aðildarfélög, þjálfara aðildarfélaga, dægradvöl, foreldra og forráðamenn barna í Íþróttaskólanum
  • Skráning í Abler

Hæfniskröfur

  • Reynsla af þjálfun barna
  • Þjálfaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
  • Þjálfari þarf að vera fyrirmynd fyrir börn og fullorðna og koma vel fyrir
  • Jákvætt hugarfar og góð samskiptafærni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Sveigjanleiki og ríkur vilji til að vinna með börnum eru skilyrði
  • Íslenskukunnátta
  • Áhugi á uppbyggingu íþróttastarfs í Ísafjarðarbæ er mikilvægur kostur

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknir skulu berast til Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á netfangið <[email hidden]> . Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Dagný í síma 450-8000 eða í gegnum fyrrgreint tölvupóstfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

This is an external listing. JobSpring does not represent or verify the employer. Report this listing