Þjálfari
Ísafjarðarbær · Landsbyggð, Iceland
About The Role
Ísafjarðarbær auglýsir eftir þjálfurum fyrir íþróttaskólann á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. Æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða tímavinnustörf þar sem þjálfun á Flateyri fer fram á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 14:00 til 15:00, á Suðureyri á miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 13:00 til 14:00 og á Þingeyri þriðjudaga og miðvikudaga frá 14:00 til 15:00. Þjálfarar eru í nánu samstarfi við yfirþjálfara íþróttaskólans. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026.
Íþróttaskólinn var settur á fót haustið 2011, er samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar og er rekinn af Ísafjarðarbæ. Skólinn er fyrir öll börn 1.-4. bekkjar í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Lögð er áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV.
Markmið skólans eru að
- hvetja og fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
- fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
- börn fái tækifæri til að kynnast sem flestum íþróttagreinum
- auka gæði þjálfunar
- lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
- auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu
Helstu verkefni
- Umsjón með starfi íþróttaskólans á viðkomandi stað, skipulagi og þjálfun íþróttagreina
- Útbúa æfingaáætlun fyrir grunnþjálfun, boltaskóla og sund í samstarfi við yfirþjálfara
- Aðkoma að gerð stundaskráar
- Samskipti við aðildarfélög, þjálfara aðildarfélaga, dægradvöl, foreldra og forráðamenn barna í Íþróttaskólanum
- Skráning í Abler
Hæfniskröfur
- Reynsla af þjálfun barna
- Þjálfaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
- Þjálfari þarf að vera fyrirmynd fyrir börn og fullorðna og koma vel fyrir
- Jákvætt hugarfar og góð samskiptafærni
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Sveigjanleiki og ríkur vilji til að vinna með börnum eru skilyrði
- Íslenskukunnátta
- Áhugi á uppbyggingu íþróttastarfs í Ísafjarðarbæ er mikilvægur kostur
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir skulu berast til Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á netfangið <[email hidden]> . Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Dagný í síma 450-8000 eða í gegnum fyrrgreint tölvupóstfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-
Similar roles you might like
See all →This is an external listing. JobSpring does not represent or verify the employer. Report this listing
