Bókari til PwC á Akureyri eða Húsavík
PricewaterhouseCoopers hf · Iceland, United States
About The Role
Line of Service
Assurance
Industry/Sector
Not Applicable
Specialism
Assurance
Management Level
Senior Associate
Job Description & Summary
Langar þig að vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum, þróa fagþekkingu þína og vera hluti af öflugu sérfræðiteymi?
Vegna aukinna verkefna og vaxtar leitum við að bókara til starfa á skrifstofu PwC á Norðurlandi. Starfsstöð er annaðhvort á skrifstofu PwC á Akureyri eða á Húsavík.
Hjá PwC færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum viðskiptavinum úr ólíkum atvinnugreinum og byggja upp víðtæka reynslu á sviði bókhalds, launavinnslu og rekstrarráðgjafar. Þú verður hluti af tíu manna teymi bókara, sérfræðinga og löggiltra endurskoðenda á Norðurlandi sem vinnur náið saman og deilir þekkingu sín á milli. Boðið er upp á markvissa starfsþróun, öfluga fræðslu og aðgang að víðtæku sérfræðineti PwC hérlendis og erlendis.
Við tökum vel á móti umsóknum bæði frá reynslumiklum bókurum og einstaklingum sem hafa góðan grunn og vilja þróast áfram í faginu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og afstemmingar
- Launavinnsla
- Samskipti við viðskiptavini og ráðgjöf vegna daglegra bókhalds- og rekstrarmála
- Þátttaka í gerð uppgjöra og skattframtala, eftir reynslu og áhugasviði
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur reynslu af bókhaldi og/eða launavinnslu
- Hefur góða þjónustu- og samskiptahæfni
- Vinnur af nákvæmni og ábyrgð
- Sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt
- Hefur góða íslensku- og enskukunnáttu
Kostur en ekki skilyrði
- Reynsla af uppgjörum og skattframtalsgerð
- Þekking á Business Central, DK og/eða Reglu
Hvers vegna PwC?
Hjá PwC færðu tækifæri til að byggja upp víðtæka reynslu, vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum og þróast faglega í nánu samstarfi við sérfræðinga á Norðurlandi, um land allt og víðar innan alþjóðlegs PwC samstarfsnetsins.
Við bjóðum þér að
- vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum og atvinnugreinum
- vera hluti af öflugu tíu manna teymi á Norðurlandi
- læra af reyndum sérfræðingum í bókhaldi, uppgjörum, skattamálum og endurskoðun
- þróa þekkingu þína með markvissri fræðslu og endurmenntun
- nýta alþjóðlegt sérfræðinet PwC hérlendis og erlendis
- starfa í umhverfi þar sem samvinna, fagmennska og þekkingarmiðlun eru í fyrirrúmi.
Við leggjum ríka áherslu á vellíðan starfsfólks og bjóðum meðal annars upp á heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk og fjölskylduvænt starfsumhverfi.
Viltu vita meira?
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, forstöðumaður PwC á Norðurlandi á netfangið sigurdur.i.rognvaldsson@pwc.com eða Katrín Ingibergsdóttir, mannauðsstjóri, á netfangið mannaudur@pwc.com.
Tekið er á móti umsóknum á vef okkar www.pwc.is/storf til og með 8. september nk.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Um PwC
PwC er framsækið og traust fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækjaráðgjafar og skatta- og lögfræðiráðgjafar. PwC er eitt stærsta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki í heiminum. PwC leggur áherslu á faglega uppbyggingu, þátttöku í námskeiðum og sérhæfingu starfsfólks.
Education (if blank, degree and/or field of study not specified)
Degrees/Field of Study required
Degrees/Field of Study preferred
Certifications (if blank, certifications not specified)
Required Skills
Optional Skills
Accepting Feedback, Accepting Feedback, Accounting Advisory, Accounting and Financial Reporting Standards, Accounting Policies, Accounting Practices, Account Reconciliation, Active Listening, Analytical Thinking, Communication, Creativity, Credit Control, Embracing Change, Emotional Regulation, Empathy, Escalation Management, Financial Accounting, Financial Budgeting, Financial Forecasting, Financial Policy, Financial Record Keeping, Financial Reporting, Financial Statement Analysis, Financial Statement Preparation, Financial Transactions {+ 11 more}
Desired Languages (If blank, desired languages not specified)
Travel Requirements
- 0%
- Available for Work Visa Sponsorship?
No
Government Clearance Required?
No
Job Posting End Date
september 9, 2026
This is an external listing. JobSpring does not represent or verify the employer. Report this listing
JobSpring