Skip to content
← Back to job listings

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte

Deloitte · Kópavogur

Quick applyfull-timeabout 7 hours ago

About The Role

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á netöryggi, þar á meðal regluverki, áhættustýringu og stjórnarháttum, til að styrkja vaxandi netöryggisteymi okkar. 

Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á reglufylgni, úttektir og eftirlit  á sviði netöryggis, áhættustýringu ásamt uppbyggingu öflugra stjórnarhátta og öryggisráðstafana. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka virkan taka þátt í að greina ferla og verklag og efla netöryggi og netöryggisvarnir viðskiptavina. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð  

Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:  

  • Úttektir, gloppugreiningar og mat á fylgni við lög, reglur, stjórnunarkerfi eða innra verklag s.s. DORA, NIS2 og ISO27001 
  • Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu m.a. til að þróa og bæta netöryggisverklag 
  • Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana  
  • Áhættumat, áhættustýring og greining netöryggisáhættu  
  • Stjórnendaþjálfun og fræðsla  

Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.  

Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina.  

Menntunar- og hæfniskröfur  

  • Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi  
  • Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum netöryggis 
  • Hæfni til að greina flókin verkefni af öryggi og aðlagast hratt nýjum áskorunum 
  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu  
  • Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð  
  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt  
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli  
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini  
  • Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum  
  • Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+ eða sambærilegar vottanir) eru kostur 

Um teymið  

Netöryggisteymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.  

Starfsþróun þín  

Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.  

 

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi  

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veita Alma Tryggvadóttir er leiðir netöryggisráðgjöf Deloitte ( [email hidden] ) og Hafdís Björk Stefánsdóttir í mannauð. ( [email hidden] ). 

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is , til og með 17. ágúst 2026.   

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

This listing was posted by a verified recruiter at Deloitte. Report this listing